Ferðasaga litlu fjölskyldunnar

Ferðalagið hingað til Lecce gekk vel í flest alla staði. Jónas afi keyrði  okkur á flugvöllinn í kefl, það er alltaf leiðinlegt að segja bless,  en fjölskyldan var þó sátt við að kveðja land og þjóð og fara í sitt umhverfi. Flugið til Gatwick gekk vel og við rétt náðum rútunni sem átti að flytja okkur til Stansted. Að vísu lentum við í umferðarteppu  á leið til Stansted en sem betur var aðeins klst seinkun, en ekki 2 tímar eins og bílstjórinn óttaðist. Við náðum þar af leiðandi fluginu okkar til Brindisi en það mátti ekki tæpara standa. 

Eftir að vera búin að ferðast í 12 klukkustundir var fjölskyldan orðin ansi þreytt þegar loksins á leiðarenda var komið. Við vorum komin hingað á Via Giusti akkúrtat kl 22:00, en það var sá tími sem við höfðum mælt okkur mót við leigendurna til að fá lykil af íbúðinni. Meðan við biðum eftir þeim komu nokkrir nágrannar og heilsuðu upp á okkur, virðist vera hresst lið!! Gerði hafði hlakkað mikið til að komast loksins heim til sín, þannig að sú stutta varð vægast sagt vonsvikinn þegar hún labbaði inn í allt aðra íbúð en þá sem hún áleit vera sitt heimili ( okkar fyrri íbúð hér í Lecce). Það luku nokkur tár og smá snökkt enda þreyta og spennufall til staðar. Eftir að skila af okkur töskunum  fórum við og fengum okkur pizzu á local kaffihúsinu okkar og eftir að hafa fengið smá fyllingu í magann sofnuðu skvísurnar vært.

Laugardagurinn fór að mestu í að koma sér fyrir í nýju íbúðinni, taka upp úr kössum, kistlum og töskum. Gerður var fljót að jafna sig vonbrigðunum með íbúðina þegar hún fékk sitt gamla dót og lítið heyrðist í þeirri stuttu fyrripart dags þar sem hún var niðursokkin í leik með dúkkurnar sínar. Laufey uni sér líka vel, en var ekki alveg sátt að geta ekki farið strax út í búð og keypt eitt stk hund !! Við reynum nú að redda því máli fljótlega. 

Á sunnudeginum fórum við svo á ströndina og hittum Daniellu og Mario. Áttum góðan dag í sólinni með góðum vinum. Við hjónin erum alsæl með að vera komin heim til Lecce og ég held ég sé bara bjartsýn á að þessi vetur muni koma til með að vera ánægjulegur og farsæll.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldóra Björk Smáradóttir
Halldóra Björk Smáradóttir
Er búsett í litlum smábæ syðst á Ítalíu ásamt fjölskyldu sem samanstendur af  eiginmanni og tveimur dætrum. Lárus eiginmaður minn, og besti vinur, er matreiðslumaður og saman stefnum við á að opna litla veisluþjónustu hérna í Lecce. Eldri dóttir okkar, Laufey Kristín, er að hefja sinn annan vetur í ítölskum grunnskóla og stendur sig ótrúlega vel, er strax búin að vinna fá viðurkenningu fyrir frammúrskarandi i stærðfræði :-) Yngri prinsessan, Gerður Katrín, er í leikskóla og unir sér vel þar með Maestru sinni og bekkjarfélögum.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband