Palestra og karate

09 september, Þriðjudagur

Í morgun ákváðum við að fara á ströndina, við fengum okkur morgunamat og löguðum svo aðeins til og svo um 11 leytið héldum við út á  stoppistöð. Reyndar hafði ég rétt áður kíkt á oraio á strætóunum hér og sá þar að þeir voru búnir að breyta sumartíma yfir í vetrartíma. En Lalli trúði því  nú ekki og við fórum galvösk út á stoppistöð. Biðum þar heillengi þar til gömul kona sagði okkur að þeir væru búnir að breyta tímanum, að það væru næstum 2 tímar í okkar bus. Jæja. Við erum nú ekki þekkt fyrir að deyja ráðalaus þannig að við ákváðum að skoða bara líkamsræktarstöð í nágrenni við okkar í staðinn. Eftir að hafa farið upp og pissað eftir strætóbiðina héldum við af stað í gymið. Þar tók elskuleg stúlka á móti okkur og þegar við spurðum hver sæi um karate fyrir börnin, svaraði hún um hæl að það væri hann  Maricio, en það er einmitt meistarinn hennar laufeyjar í karate. Þannig í stuttu máli er hann búin að flytja sig frá Piazza paolo, sem by the way var við hliðiná okkur í fyrra, í okkar hverfi hér við Via Giusti. Incredibili....Já, svona getur lukkan leikið við okkur JNúna getur öll fjölskyldan farið í ræktina á sama tíma, 3 í viku. Úúu við verðum helköttuð í vor. Ég er nú samt að velta því fyrir mér að fara í yoga.. en það er annað mál.

Þannig að..eftir að hafa skoðað palestra var tími til komin að bíða eftir strætó. Hann kom og við lágum ein á ströndinni í frá hálf 2 til 17:30...þá var mamman búin að fá nóg og vildi fara af stað og fá sér kaffi á Alex bar. Þar biðum við í klst og úti biðum við í aðra klst vegna vaginin var seinn á ferð. Við vorum bæði köld og hungruð þegar við komumst loks heim. Lalli fór niður á bar og pantaði pizzur sem við átum með góðri lyst. Í millitíðinn hringdu mamma og pabbi á skype, það var bæði gott að sjá þau og  heyra í þeim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldóra Björk Smáradóttir
Halldóra Björk Smáradóttir
Er búsett í litlum smábæ syðst á Ítalíu ásamt fjölskyldu sem samanstendur af  eiginmanni og tveimur dætrum. Lárus eiginmaður minn, og besti vinur, er matreiðslumaður og saman stefnum við á að opna litla veisluþjónustu hérna í Lecce. Eldri dóttir okkar, Laufey Kristín, er að hefja sinn annan vetur í ítölskum grunnskóla og stendur sig ótrúlega vel, er strax búin að vinna fá viðurkenningu fyrir frammúrskarandi i stærðfræði :-) Yngri prinsessan, Gerður Katrín, er í leikskóla og unir sér vel þar með Maestru sinni og bekkjarfélögum.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband